Veitingastaðir

Gullklúbbsmeðilimir fá góðan afslátt á þessum veitingastöðum

Brasserie GrandVeitingastaðurinn Brasserie Grand er fyrsta flokks a la carte staður á Grand hótel Reykjavík, þar sem aðaláherslan er lögð á fjölbreyttan matseðil við allra hæfi. Þar má finna allt frá léttum smáréttum, íslenskum sjávarréttum og alþjóðlegum réttum upp í fjögurra rétta matseðil. Á vínseðlinum er fjölbreytt úrval alþjóðlegra vína.
Veitingastaðurinn og barinn eru opnir alla daga og öll kvöld.

Veitingahúsið Fjalakötturinn Á Fjalakettinum , sem er í Aðalstræti 16 í miðborg Reykjavíkur, fá gestir að upplifa alvöru sögufræga Reykjavíkurstemmingu. Á veitingastaðnum er lögð áhersla á fagmennsku og fyrsta flokks þjónustu, mat og vín. Fjalakötturinn býður upp á alþjóðlegt eldhús og fjölbreytni í íslensku hráefni.
Hér má sjá það fjölbreytilega úrval sem er í boði á staðnum.
Fjalakötturinn er opnn frá kl. 18:00 til 22:00 virka daga en til 23:00 á föstudögum og laugardögum.

Uppsalir - bar og kaffihúsUppsalir cafe og bar, er við hlið Fjalakattarins, þar sem gestir geta slakað á og notið þess að fá sér drykk fyrir eða eftir matinn í huggulegu umhverfi gamla Aðalstrætis 16. Hollur og góður hádegisverðarseðill er á boðstólnum í öll hádegi. Uppsalir eru opnir frá 11:30 og til 23:00 alla virka daga. Um helgar eru Uppsalir opnir frá hádegi til klukkan eitt um nóttina á föstudögum og laugardögum.

Gullklúbburinn