Heilsurækt

Heilsurækt við Reykjavíkurhótelin

Fjölbreytilegir möguleikar eru á því að stunda fjölbreytilega heilsurækt í og við Reykjavíkurhótelin.

Grand Hótel Reykjavík stendur rétt við Laugardalinn heilsuræktarparadísina. Aðstaða til útivistar, leikja og líkamsræktar er til fyrirmyndar í dalnum og borgarbúar nota þessa paradís allan ársins hring. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er vinsæll sem og skautahöllinn og að sjálfsögðu stendur Laugardalslaugin alltaf fyrir sínu.

Skammt frá Hótel Reykjavík er Sundhöllin og mikilvægt að taka góðan sundsprett þar og taka svo smá þjóðmálaspjall í heitu pottunum. Finna má hlaupaleiðr við flestar sundlaugarnar í Reykjavík. Leiðirnar eru mismunandi langar og erfiðar og ætti hver og einn að finna leið við sitt hæfi.

Við mælum með því að hótelgestir Hótel Reykjavík Centrum heimsæki Ylströndina í Nauthólmsvík og prófi að taka sundsprett í sjónum eða bara að njóta þess að sitja í heitu pottunum. Nauthólsvík er fjölbreytt útivistarsvæði þar sem í boði er útivera allan ársins hring, sólböð, sjóböð og siglingar.

more

Fréttir og tilboð

Hugsað um heilsuna í hádeginu

Heilsan er höfð í fyrirrúmi á hádegismatseðlinum á Uppsölum. Þar má finna létta og fjölbreytilega ...

Meira