Inspired by Iceland
Jungle Drum og Inspired by Iceland
Hefur Ísland veitt þér innblástur? Láttu þína sögu berast og fáðu aðra vini þína hér heima og erlendis að gera slíkt hið sama. Fimmtudaginn 3. júní hófst þjóðarátak í tengslum við markasherferðina Inspired by Iceland sem ferðaþjónustan, ríkið, Reykjavíkurborg og Útflutningsráð standa sameiginlega að á erlendum vettvang. Ætlunin er að virkja íslenskan almenning og fá fólk til þess að vekja jákvæða athygli á Íslandi undir heitinu Þjóðin býður heim.
Á vefnum Inspired by Iceland skemmtilegt myndaband og eru allir hvattir til að senda það til fjölskyldu, vina, kunningja og viðskiptafélaga erlendis. Hægt er að senda myndbandið á öllum tímum. Landsmenn eru hvattir til þess að sýna samstöðu og leggja efnahagslegri uppbyggingu lið. Mikilvægt er að koma þeim skilaboðum á framfæri að landið sé opið og aðgengilegt, viðskipti gangi fyrir sig með eðlilegum hætti og einmitt nú sé rétti tíminn til þess að heimsækja land og þjóð. Tilgangurinn með þjóðarátakinu er að fjölga ferðamönnum til Íslands, auka gjaldeyristekjur þjóðarbúsins og lágmarka þann skaða sem eldgosið í Eyjafjallajökli olli ferðaþjónustu og tengdum greinum.
Í myndbandinu fléttast saman glettnar svipmyndir og myndskeið frá mörgum fallegustu stöðum landsins. Myndbandið samanstendur af hressilegum og skemmtilegum myndum af fólki sem dansaði við Jungle Drum, lag og söng Emilíönu Torrini, við ólíkar aðstæður á Íslandi. Myndbandið er til þess fallið að leiðrétta ranghugmyndir um ástandið hér á landi. Mikilvægt er að koma þeim skilaboðum á framfæri að landið sé opið og aðgengilegt, viðskipti gangi fyrir sig með eðlilegum hætti og þess vegna sé það rétti tíminn núna að heimsækja land og þjóð.
Fréttir og tilboð
Gestum gert kleyft að skila inn gömlum og ónýtum raftækjum til endurnýtingar
Fyrsta hótelið í heiminum að bjóða hótelgestum að skila inn gömlum og ónýtum raftækjum til endurný...
Meira






