Náttúruvæn hótel

Reykjavíkurhótelin styðja sjálfbæra ferðaþjónustu þar sem virðing er borin fyrir umhverfinu og verndun náttúrulegra og menningarlegra auðlinda er tryggð til langs tíma, og er ásættanleg og réttlát frá félagslegu og efnahagslegu sjónarmiði.

Sjö þrepa endurvinnsluáætlun
Reykjavíkurhótelin eru í samstarfi við Sorpu með sjö þrepa endurvinnsluáætlun og sem snýr að því að endurvinna og flokka allt sorp frá hótelunum.
Náttúruvænt hótel. Grand Hótel ReykjavíkSamstarfið felur í sér endurnýtingu á öllum pappír sem kemur frá hótelunum, þ.e. flokkun á öllum pappír sem fellur til frá skrifstofunum þannig að allar bréfakörfur af skrifstofunum hverfa og í stað þeirra koma sérstakir kassar sem taka við öllum pappír. Einnig er annar pappír endurunninn eins og; dagblöð og tímarit, sléttur pappi, bylgjupappi og fernur.

Allt plast er endurunnið þar sem t.d. plastfilma fer í sérstaka söfnunargrind, sem og plastbrúsar, plastfötur, bakkar og dósir. Málmílát og rafhlöðum er safnað í þar til gerð ílát.
Allur lífrænn úrgangur úr eldhúsi er flokkaður sérstaklega sem og annar úrgangur sem þaðan kemur og er settur í sérstakan gám frá Sorpu.
 
Starfsmenn eru fræddir reglulega um mikilvægi endurvinnslunnar fyrir umhverfið og hvernig hægt er að minnka úrgang og mengun. Einnig hvernig skal draga úr orkunotkun og notkun á vatni.

Náttúruvænt hótel - laust við rafsegulmengun
Grand Hótel Reykjavík er náttúruvænt hótel sem státar af því að vera eina hótelið í heimi sem er laust við allar rafmagnstruflanir og rafmengun.

Við stækkun hótelsins var lögð áhersla á að ganga frá rafmagni með þeim hætti að húsið væri laust við allar rafmagnstruflanir og rafsegulmengun. Allt burðarvirki var tengt við um 200 bergfestur sem ná sex metra inn í bergið undir hótelinu. Því næst var boruð 80 metra djúp hola og koparvír leiddur ofan í hana; steypt í holuna með sérstakri leiðandi steypu. Að lokum var allt burðarvirki hússins, loftræsistokkar, ofnalagnir og allt rafkerfi tengt við þessa jarðtengingu.

Í eldri hluta hótelsins var einnig ráðist í að binda saman burðarvirkið og fljótandi málmhluti sem voru síðan tengdir inn á holuna. Holan virkar sem útgangspunktur fyrir alla óæskilega tíðni sem getur haft truflandi áhrif á bæði menn og búnað. Kerfið heldur segulsviðinu undir 0.6 milligásum á fermetra sem er töluvert undir 8 milligása stöðlum í reglugerðum. Til samanburðar má nefna að rafmagnstæki sem notuð eru á heimilum og í fyrirtækjum geta gefið frá sér 40-100 milligása rafsvið.

Við viljum hafa jákvæð áhrif á umhverfið.

more

Fréttir og tilboð

Gistitilboð í maí

Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...

Meira