Ráðstefnur og fundir
Ráðstefnu og fundaaðstaða á Reykjavíkurhótelunum
Reykjavíkurhótelin eru með fjölbreytta aðstöðu til ráðstefnu- og fundahalds. Við leggjum metnað í að þjóna okkar viðskiptavinum með sem bestum hætti. Sölufulltrúarnir í ráðstefnudeild Reykjavíkurhótelanna hafa margra ára reynslu í að skipuleggja ráðstefnur og fundi fyrir stór og smá fyrirtæki og stofnanir. Þau hafa aðstoðað við skipulagningu á veislum af ýmsum toga, eins og afmælisveislur, brúðkaupsveislur, fermingarveislur, útskriftarveislur og ættarmótum sem og virðulegri viðburði eins og erfidrykkju. Umsjón með skipulagningu á hópeflisfundum, sölufundum og fyrirtækjafundum eins og aðalfundir fyrir stór og smá fyrirtæki sem og vörusýningar ýmis konar. Þjónustufulltrúar okkar í ráðstefnudeildinni geta gefið þér ýtarlegar upplýsingar um stærðir á ráðstefnu- og fundarsölum, hvernig best er að skiipuleggja salina, hvaða veitingar henta tilefninu svo og hvaða gistimöguleikar eru í boði fyrir gestina.
Stærri ráðstefnur og fundarhald við ýmis tilefni
Á
Grand Hótel Reykjavík eru 17 salir og fundarherbergi sem taka 12 - 450 manns í sæti. Ráðstefnusalirnir og fundarherbergin eru samtals rúmlega 1.600 m2 og með mikinn fjölbreytileika í uppsetningu.
Á Grand Hótel Reykjavík er aðeins það besta í boði í tækninni þar sem við leggjum okkur fram við að mæta kröfum okkar viðskiptavina.
Hótelið hefur 314 hótelherbergi sem m.a. eru executive herbergi, júníor svítur, íbúðasvítur og fjölskylduherbergi. á neðstu hæðinni á Grand Hóteli eru svæði til að rækta hugann og líkamann, en á líkamsræktarstöðin Grand Spa er hægt að stunda líkamsrækt, fara í heita potta og nudd auk snyrtisttofu sem sækja má þar til gerða þjónustu.
Umhverfið er hvetjandi og eflir skapandi hugsun og frumkvæðni
Ef þú þarft að halda minni ráðstefnu eða þig vantar stað fyrir viðskiptafund í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi að þá er sögufræga landnámssetrið á Hótel Reykjavík Centrum tilvalinn.
Fundaraðstaðan er til fyrirmyndar og tekur að hámarki 50 manns í sæti. Allur nauðsynlegur tækjabúnaður til funda og ráðstefnuhalds er af bestu gerð. Á hótelinu eru tveir ráðstefnusalir; annar sem tekur 14 manns í sæti og hinn salinn má stilla upp eftir tilefni og getur hann tekið við allt að 40 manns í sæti.
Aðstaðan á Hótel Reykjavík Centrum hentar vel fyrir ýmis konar tilefni eins og t.d. viðtöl, sölufundi, þjálfun söluhópa, vörukynningar, minni ráðstefnur, aðalfundi eða fyrirtækjafundi.
Grand Hótel Reykjavík eru 17 salir og fundarherbergi sem taka 12 - 450 manns í sæti. Ráðstefnusalirnir og fundarherbergin eru samtals rúmlega 1.600 m2 og með mikinn fjölbreytileika í uppsetningu.Á Grand Hótel Reykjavík er aðeins það besta í boði í tækninni þar sem við leggjum okkur fram við að mæta kröfum okkar viðskiptavina.
Hótelið hefur 314 hótelherbergi sem m.a. eru executive herbergi, júníor svítur, íbúðasvítur og fjölskylduherbergi. á neðstu hæðinni á Grand Hóteli eru svæði til að rækta hugann og líkamann, en á líkamsræktarstöðin Grand Spa er hægt að stunda líkamsrækt, fara í heita potta og nudd auk snyrtisttofu sem sækja má þar til gerða þjónustu.
Umhverfið er hvetjandi og eflir skapandi hugsun og frumkvæðni
Ef þú þarft að halda minni ráðstefnu eða þig vantar stað fyrir viðskiptafund í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi að þá er sögufræga landnámssetrið á Hótel Reykjavík Centrum tilvalinn.
Fundaraðstaðan er til fyrirmyndar og tekur að hámarki 50 manns í sæti. Allur nauðsynlegur tækjabúnaður til funda og ráðstefnuhalds er af bestu gerð. Á hótelinu eru tveir ráðstefnusalir; annar sem tekur 14 manns í sæti og hinn salinn má stilla upp eftir tilefni og getur hann tekið við allt að 40 manns í sæti.
Aðstaðan á Hótel Reykjavík Centrum hentar vel fyrir ýmis konar tilefni eins og t.d. viðtöl, sölufundi, þjálfun söluhópa, vörukynningar, minni ráðstefnur, aðalfundi eða fyrirtækjafundi.
Hafðu sambandi við ráðstefnustjórann á Reykjavíkurhótelunum
Sölu- og þjónustufulltrúar ráðstefnudeildarinnar munu aðstoða þig við að skipuleggja fundina og ráðstefnurnar að þín höfði. Frekari upplýsingar og bókarnir hafið þá samband við ráðstefnustjórann, Linda C. Martinsdóttir, í síma 514-8020 eða að senda henni póst.
more
Fréttir og tilboð
Jazzhátíð Reykjavíkur og Reykjavíkurhótelin í samstarf
Jazzhátíð Reykjavíkur verður haldin dagana 14. - 29. ágúst og er þetta í 21. skipti sem hátíðin er...
Meira





