Tæknibúnaður
Tæknibúnaður til ráðstefnu og fundarhalda
Á Reykjavíkurhótelunum er mjög góður ráðstefnu- og fundabúnaður fyrir alla mögulega viðburði, jafnt stóra sem smáa. Við höfum alla hugsanleg tækni vegna ljós-, hljóð- og myndbúnaðar og tæknina til að bjóða fjarfundaþjónustu og beinar útsendingar á Internetinu.
Almenn tæki til ráðstefnu- og fundahalds
Tæki innifalin í salarleigu eru: Myndvarpi (glæruvarpi), sýningartjald, flettitafla, hljóðkerfi fyrir talmál púlti með hljóðnema.
Hljóðkerfin og annar búnaður til hljóðs er af fullkomnustu gerð, svo og myndsýningar- og tölvubúnaður.
Fjarfundarþjónusta
Frá árinu 2002 hefur mikill fjöldi fjarfunda farið fram á Grand Hótel Reykjavík. Með þessari þjónustu gefst viðskiptavinum kostur á að halda fundi með skömmum fyrirvara hvort heldur um er að ræða fundi milli landshuta eða á milli landa.
Útsending á Netinu
Ráðstefnudeild Reykjavíkurhótela hefur í boði öfluga þjónustu sem gerir útsendingu á hljóði og mynd mögulega á Netinu. Öll fyrirtæki með vefsíðu geta nýtt sér þessa þjónustu.
Nánari upplýsingar og tæknilausnir veitir Siguróli Jóhannsson, tæknistjóri. Beint númer hans er 514-8005 og netfang.
Fréttir og tilboð
Hugsað um heilsuna í hádeginu
Heilsan er höfð í fyrirrúmi á hádegismatseðlinum á Uppsölum. Þar má finna létta og fjölbreytilega ...
Meira





