Reykjavíkur hótelin
Reykjavíkuhótelin eru hágæða hótel í hjarta Reykjavíkur
Reykjavíkurhótelin eru glæsileg hótel sem staðsett eru miðsvæðis í höfuðborginni. Hótelin eru þrjú; Hótel Reykjavík, Grand Hótel Reykjavík og Hótel Reykjavík Centrum. Hvert hótel hefur sitt sérkenni en öll eiga það sammerkt að veit afburða hágæða þjónustu sem sniðin er að þínum þörfum.
Við hjá Reykjavíkurhótelum leggjum metnað okkar í að þjóna okkar viðskiptavinum. Hótelin standast alþjóðlegan mælikvarða og bjóðum við aðeins það besta í gistingu og mat og drykk. Ráðstefnu- og fundaaðstaðan er ein sú besta á öllu landinu og á hótelunum er mikill fjölbreytileiki í fundar- og salarrými.
.
Glæsilegt hótel sem staðsett er í hjarta Reykjavíkur. Hótelið er byggt á gömlum grunni en elsti hluti hússins var byggður árið 1764 og útlit hótelsins sótt til Reykjavíkur upp úr aldamótunum 1900. Á hótelinu eru 89 herbergi með öllum þægindum. Veitingastaðurinn Fjalakötturinn og Uppsalir café & bar eru við hótelið.
Hótel Reykjavík Centrum
Aðalstræti 16, 101 Reykjavík
Sími: 514 6000
Fax: 514 6030
E-mail: reservations@hotelcentrum.is
.
Þægilegt þriggja stjörnu hótel í rólegu hverfi í nágrenni við miðbæ Reykjavíkur. Hótel Reykjavík er með 79 notaleg hótelherbbergi, junior svítur og fjölskylduherbergi. Á hótelinu er veitingastaðurinn Rauðará steikhús og einnig er vel útilátið morgunverðarhlaðborð á hverjum morgni.
Hótel Reykjavík
Rauðarárstígur 37, 105 Reykjavík
Sími: 514 7000
Fax. 514 7030
E-mail: reservations@hotelreykjavik.is
.
Hágæða fjögurra stjörnu ráðstefnuhótel með 14 ráðstefnu- og veislusölum og 314 rúmgóðum herbergjum, Brasserie Grand veitingastað, bar og heilsuræktarstöð. Grand Hótel Reykjavík er í rólegu hverfi staðsett við Laugardalinn.
Grand Hótel Reykjavík
Sigtún 38, 105 Reykjavík
Sími: 514 8000
Fax: 514 8030
E-mail: reservations@grand.is
Fréttir og tilboð
Íslenska tímatalið endurvakið
Gamla íslenska tímatalið hefur verið endurvakið og er nú komið á prent í formi dagatals. Dagatalið...
Meira



