Veitingastaðir
Á Reykjavíkurhótelulnum eru fyrsta flokks veitingastaðir með flotta þjónustu og góðan mat.
Grand Hótel Reykjavík
Veitingastaðurinn Brasserie Grand er fyrsta flokks a la carte staður þar sem aðaláherslan er lögð á fjölbreyttan matseðil við allra hæfi. Þar má finna allt frá léttum smáréttum, íslenskum sjávarréttum og alþjóðlegum réttum upp í fjögurra rétta matseðil.
Á vínseðlinum er fjölbreytt úrval alþjóðlegra vína. Við leggjum áherslu á góða og persónulega þjónustu. Veitingastaðurinn og barinn eru opnir alla daga og öll kvöld.
Úrvalslið fagmanna sér um að láta þér líða vel á Grand.
Hótel Reykjavík
Rauðará er í hjarta miðborgarinnar og er tilvalinn staður til að njóta ánægjulegra stunda í fallegu umhverfi og notalegu andrúmslofti.
Matseðillinn er fjölbreyttur þar sem áhersla er lögð á úrval sjávarrétta og léttra rétta en að sjálfsögðu var haldið fast í aðalsmerki staðarins sem eru gómsætar og safaríkar steikur af ýmsum toga. Í húsinu var eitt elsta brugghús borgarinnar starfrækt
Hótel Reykjavík Centrum
Á Fjalakettinum fá gestir að upplifa alvöru sögufræga Reykjavíkurstemmingu. Á veitingastaðnum er lögð áhersla á fagmennsku og fyrsta flokks þjónustu, mat og vín. Fjalakötturinn býður upp á alþjóðlegt eldhús og fjölbreytni í íslensku hráefni.
Uppsalir er við hlið Fjalakattarins þar sem gestir geta slakað á og notið þess að fá sér drykk fyrir eða eftir matinn í huggulegu umhverfi gamla Aðalstrætis 16.
Fréttir og tilboð
Gestum gert kleyft að skila inn gömlum og ónýtum raftækjum til endurnýtingar
Fyrsta hótelið í heiminum að bjóða hótelgestum að skila inn gömlum og ónýtum raftækjum til endurný...
Meira






