Fréttir og tilboð
Menningarnótt Reykjavíkurborgar
14.08.2009
Menningarnótt Reykjavíkurborgar er haldin í fjórtánda sinn og hefur ávallt verið best sótti viðburður á Íslandi þar sem nær þriðjungur þjóðarinnar safnast saman í Reykjavík í menningarlegri gleði.
Þessi viðburðaríki dagur hefst á Reykjavíkurmaraþoninu og er búist við metþátttöku í ár í þessu sívinsæla hlaupi.
Þema Menningarnætur að þessu sinni verður „Húsin í bænum“. Með því er meiningin að vekja athygli á fegurð og margbreytileika húsanna í bænum og menningunni sem tengist þeim.
Það er ávallt mikil stemning í miðborginni og viðburðir á hverju götuhorni, á torgum, kaffihúsum, listasöfnu og kirkjum.
Reykjavíkurhótelin láta ekki sitt eftir liggja í þessum hátíðarhöldum og gestir sem gangandi er velkomið að hvíla lúnin bein í veitingasölum hótelanna og þiggja veitingar.
Fréttir og tilboð
Íslenska tímatalið endurvakið
Gamla íslenska tímatalið hefur verið endurvakið og er nú komið á prent í formi dagatals. Dagatalið...
Meira






