Fréttir og tilboð

Jungle Drum - Inspired by Iceland

01.06.2010

Inspired by IcelandFimmtudaginn 3. júní verður efnt til þjóðarátaks í tengslum við markasherferðina Inspired by Iceland sem ferðaþjónustan, ríkið, Reykjavíkurborg og Útflutningsráð efna til sameiginlega á erlendum vettvangi nú í byrjun sumars. Ætlunin er að virkja íslenskan almenning og fá fólk til þess að vekja jákvæða athygli á Íslandi undir heitinu Þjóðin býður heim.

Á fimmtudaginn  á milli kl. 13 og 14  er fólk  eindregið hvatt til að senda glænýtt og skemmtilegt myndaband af síðunni www.inspiredbyiceland.is til fjölskyldu, vina, kunningja og viðskiptafélaga erlendis. Þeir sem ekki hafa tök á því á þeim tíma geta sent myndbandið á öðrum tímum dagsins eða hvenær sem er næstu vikurnar

Landsmenn fá nú kjörið tækifæri til þess að sýna samstöðu og leggja efnahagslegri uppbyggingu lið. Mikilvægt er að koma þeim skilaboðum á framfæri að landið sé opið og aðgengilegt, viðskipti gangi fyrir sig með eðlilegum hætti og einmitt nú sé rétti tíminn til þess að heimsækja land og þjóð. Tilgangurinn með þjóðarátakinu er að fjölga ferðamönnum til Íslands, auka gjaldeyristekjur þjóðarbúsins og lágmarka þann skaða sem eldgosið í Eyjafjallajökli olli ferðaþjónustu og tengdum greinum.

Í myndbandinu fléttast saman glettnar svipmyndir og myndskeið frá mörgum fallegustu stöðum landsins. Myndbandið samanstendur af hressilegum og skemmtilegum myndum af fólki sem dansaði við Jungle Drum, lag og söng Emilíönu Torrini, við ólíkar aðstæður á Íslandi. Myndbandið er til þess fallið að leiðrétta ranghugmyndir um ástandið hér á landi. Mikilvægt er að koma þeim skilaboðum á framfæri að landið sé opið og aðgengilegt, viðskipti gangi fyrir sig með eðlilegum hætti og þess vegna sé það rétti tíminn núna að heimsækja land og þjóð.

more

Fréttir og tilboð

Hugsað um heilsuna í hádeginu

Heilsan er höfð í fyrirrúmi á hádegismatseðlinum á Uppsölum. Þar má finna létta og fjölbreytilega ...

Meira