Fréttir og tilboð
Ferskur, lifandi humar sérinnfluttur frá Nova Scotia
11.06.2010
Ferskur, lifandi humar frá Nova Scotia í Kanada verður matreiddur beint á diskinn dagana 11. -13. júní á Grand hótel Reykjavík. Þetta er einstakt tækifæri til að bragða ekta kanadískan humar.
Það verður ekta kanadískur matur á boðstólum og auk humarsins verða flutt sérstaklega inn til landsins hörpuskel, túnfiskur og bláber. Bláberin frá Nova Scotia eru þekkt fyrir gæði og ferskleika og það er mikill fjölbreytileiki í villtum berjum í Nova scotia
.
Í tilefni af Nova Scotia dögunum koma til landsins tveir matreiðslumenn, Martin Ruiz Salvador og Scott Vail, báðir vel þekktir í heimalandi sínu. Martin Ruiz Salvador rekur franskan veitingastað, Fleur de Sel, ásamt eiginkonu sinni Sylvie í borginni Lunen burg á Nýfundnalandi. Þau sérhæfa sig í sjávarréttum og hefur veitingastaðurinn þeirra unnið til margra alþjóðlegrar viðurkenningar. Scott Vail er einn af stjórnendum Halliburton Boutique hótelsins í Halifax og fékk hann menntun sína á betri hótelum og veitingastöðum í Suður Ontario undir stjórn evrópskra matreiðslumeistara. Scott Vail er metnaðarfullur matreiðslumaður sem laðar fram það besta úr hráefninu.
Fréttir og tilboð
Íslenska tímatalið endurvakið
Gamla íslenska tímatalið hefur verið endurvakið og er nú komið á prent í formi dagatals. Dagatalið...
Meira






