Fréttir og tilboð
Jazzhátíð Reykjavíkur og Reykjavíkurhótelin í samstarf
21.07.2010
Jazzhátíð Reykjavíkur verður haldin dagana 14. - 29. ágúst og er þetta í 21. skipti sem hátíðin er haldin. Að venju er dagskráin hlaðin spennandi tónlistarviðburðum fluttum af bæði innlendum og erlendum listamönnum. Af erlendum aðilum má meðal annarra nefna; Django Bates, Autumn Fires and Green Shoots, Nils Wogram's Nostalgia Trio, Don Randi Quartet, Jean Marie Machado, Django Bates, Beloved Bird Trio, Loren Stillman, Kjeld Lauritsen, Jim Black, BelgistaN, Martin Roy Wade og fleiri. Og innlendu listamennirnir eru þeir færustu á landinu; Agnar Már Magnússon, Ástvaldur Traustason, Haukur Gröndal, Guitar Islancio, Jóel Pálsson, Jagúar, K Tríó, Reginfirra, Stórsveit Samma, Stórsveit Reykjavíkur, Uwagga Wagga, Moses Hightower, Sigurður Flosason, Tómas R Einarsson, Kristjana Stefánsdóttir, Ellen Kristjánsdóttir og margir fleiri.
Á Uppsölum, bar og kaffihúsi, við Aðalstræti 16, verður hamingjustund á hverjum eftirmiðdegi dag á meðan hátíðin stendur yfir og þar munu þekktir jazzlistamenn kynna sína uppáhaldstónlist auk þess sem lifandi tónlist verður um helgar.
Hér má sjá frekari upplýsingar um Jazzhátíðina í Reykjavík
Fréttir og tilboð
Íslenska tímatalið endurvakið
Gamla íslenska tímatalið hefur verið endurvakið og er nú komið á prent í formi dagatals. Dagatalið...
Meira






