Fréttir og tilboð
Óvenjuleg tískusýning og matarupplifun
16.03.2011
Fashion with Flavor er tískusýning á hágæða íslenskum glæsifatnaði og fylghlutum frá Arfleifð sem unnir eru úr íslensku hráefni á Grand Hótel Reykjavík, laugardaginn 26. mars kl. 20:00.
Íslensk náttúra er hér í sinni flottustu og fjölbreyttustu mynd þar sem íslenskt hráefni er fullnýtt í tísku, hönnun, handverki og í sex rétta óvenjulegum matseðli. Hönnun og handverk er frá Arfleifð, skartgripir frá Sign og tónlist flutt af Amazing Creature.
Panta þarf á viðburðina og innifalið er fordrykkur, 6 rétta matseðill, tískusýning, tónlistarveisla, kynning á íslenskum hráefnum sem fullnýtt eru í mat og tísku.
Verð aðeins 5.400 krónur.
Í tilefni sýningarinnar er sérstakt gistitilboð.
Fréttir og tilboð
Gistitilboð í maí
Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...
Meira






