Fréttir og tilboð

Ertu í giftingarhugleiðingum?

29.03.2011

Reykjavíkurhótelin bjóða glæsilega aðstöðu til að halda brúðkaup, brúðkaupsveislur og brúðkaupsafmæli. Ráðstefnudeildin aðstoðar í einu og öllu við að gera veisluna eftir ykkar höfði svo þið getir haldið þitt draumabrúðkaup, boðið til veglegrar brúðkaupsveislu eða notið þess að halda upp á brúðkaupsafmæli.

Brúðkaupsveislan á Grand Hótel ReykjavíkÁ Grand Hótel Reykjavík eru t.d. í boði tveir glæsilegir brúðkaupspakkar sem brúðhjónin geta notið eftir brúðkaupsveisluna. Upplifunin er ógleymanleg í rómantískri brúðarsvítu á efstu hæðinni í turni hótelsins ... og útsýnið er stórkostlegt yfir borgina og sundin blá.  Ímyndið ykkur ískalt freyðivín, rósir, konfekt og ávaxtakörfu, óvænta gjöf frá hótelinu, himneskt nudd og morgunmatur í rúmið. Svo getið þið valið hvort þið viljið snæða fjögurra rétta kvöldverð með víni við arineld.

Á Grand Hótel Reykjavík geta brúðhjónin notið hveitibrauðsdaganna, eða haldið sjálfa brúðkaupsveisluna. Við erum með veislusalina og veislumatinn. Kíktu á það sem Grand hótel hefur að bjóða fyrir brúðkaup.

Á Hótel Reykjavík Centrum er glæsileg aðstaða fyrir minni brúðkaupsveislur og má þar nefna vinalega Forsetastofu sem tekur 14 manns í sæti við eikarborð. Brúðhjónin geta svo notið sín í rómantískir júnior svítu hótelsins.

more

Fréttir og tilboð

Gistitilboð í maí

Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...

Meira