Fréttir og tilboð

Magnaðir mánudagar á Grand Hótel Reykjavík

16.03.2012

Magnaðir mánudagsfundir gefa  kraft fyrir vikuna. Við bjóðum þér að byrja vikuna með krafti og halda flottan fund með heilsusamlegu fæði, fyrir eða eftir fund, eða í fundarhléi.
Magnaðir mánudagar á Grand Hótel ReykjavíkVið bjóðum orkuríka hafraklatta og hressandi orkudrykk sem heldur blóðsykrinum í jafnvægi og auðveldar fundargestum að halda einbeitingunni og orkunni út allan daginn. Upplifðu magnaða mánudaga á Grand Hótel Reykjavík.
Á Grand Hótel Reykjavík er fyrsta flokks ráðstefnu-, funda- og veisluaðstaða með 14 sölum sem rúma allt frá 8 - 450 manns.

Ef bókaður er fundar- eða ráðstefnusalur á mánudögum í mars og apríl þá langar okkur til að bjóða eftirfarandi:

> Fundar – og veislusalir af öllum stærðum og gerðum.
> Heilsusamlega hafraklatta og hressandi orkudrykk.
> Búnað fyrir fundi; skjávarpa og frían netaðgang.
> 15% afslátt á salarleigu.
-gildir fyrir 15 manns eða fleiri.

Meira um magnaða mánudaga á Grand Hótel Reykjavík